1.2.2012 | 22:07
Stórkostlegt viðtal.
Eftir að hafa setið og hlustað á viðtalið við Eyrík Inga Jóhannsson í Kastljósi í kvöld fann ég mig knúna til þess að setjast niður og skrifa fyrstu bloggfærlsuna mína. Ég fann fyrir brennandi þörf að koma frá mér þessari sterku upplifun sem hann leiddi mig í með þessari einlægu og sterku frásögn sinni. Ég hef trú á því að það hafi verið ansi margir í sömu sporum og ég þegar þátturinn endaði, þ.e. sorgmædd, með augun full af tárum en jafnframt þakklát almættinu að hafa umvafið þennan stórkostlega mann örmum sínum og verndað í þessum raunum. Þetta segir manni bara eitt - það er sama í hverju við lendum, við megum aldrei missa vonina, aldrei gefast upp. Ég mæli með því að allir hlusti á þetta viðtal - það kennir manni að meta það sem við eigum og láta ekki hindranir yfirbuga sig. Ég segi bara takk kæri Eyríkur, þú ert hetja.
Sjónvarp | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Um bloggið
Svava Hansdóttir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (27.5.): 0
- Sl. sólarhring: 0
- Sl. viku: 3
- Frá upphafi: 143
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
